Tómas Kári Róbertsson fæddist 28. mars 2021 í Reykjavík. Hann lést á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi 13. júlí 2024. Foreldrar Tómasar Kára eru Róbert Snær Heimisson og Þóranna Finnbogadóttir. Einnig á Tómas Kári lítinn bróður, Elías Ara Róbertsson, f. 8. apríl 2024.

Útförin fer fram frá Háteigskirkju í dag, 24. júlí 2024, klukkan 13.

Elsku yndislegi ömmu- og afadrengurinn okkar, söknum þín alveg óendanlega mikið. Hrifinn frá okkur, varst rétt búinn að feta þín fyrstu spor, hvað lífið getur verið ósanngjarnt.

Varst alveg einstakur drengur, fallegur að utan sem innan. Var svo gott að heimsækja þig og sjá fallega brosið þitt. Sýndir fljótt hvað þú hafðir mikinn áhuga á að vera með mömmu þinni og pabba í eldhúsinu í turninum þínum. Einhvern tímann þegar þú varst staddur með mömmu þinni og pabba

...