Ólympíuleikarnir í París verða formlega settir föstudaginn 26. júlí en keppt verður í kvennaflokki í handbolta strax á morgun. Einn af hápunktum Ólympíuleikanna er keppni í frjálsíþróttum og má búast við magnaðri keppni á Stade de France-vellinum, en keppnin í frjálsum stendur yfir frá 1
![Goðsögn Shelly-Ann Fraser-Pryce frá Jamaíku ætlar sér að ljúka mögnuðum ferli með gullverðlaunum á Ólympíuleikunum í París í ágúst.](/myndir/gagnasafn/2024/07/24/c3565bd0-b707-4a26-b2c5-4e7fa0b42dab.jpg)
Goðsögn Shelly-Ann Fraser-Pryce frá Jamaíku ætlar sér að ljúka mögnuðum ferli með gullverðlaunum á Ólympíuleikunum í París í ágúst.
— AFP/Jewel Jamad
París 2024
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Ólympíuleikarnir í París verða formlega settir föstudaginn 26. júlí en keppt verður í kvennaflokki í handbolta strax á morgun. Einn af hápunktum Ólympíuleikanna er keppni í frjálsíþróttum og má búast við magnaðri keppni á Stade de France-vellinum, en keppnin í frjálsum stendur yfir frá 1. ágúst til 11. ágúst. Hér fyrir neðan verður farið yfir nokkrar greinar þar sem eftirvæntingin er sérlega mikil.
Eftirvæntingin fyrir 100 metra hlaup á Ólympíuleikunum er alltaf gríðarleg og á því verður engin breyting á í París. Þar er Bandaríkjamaðurinn Noah Lyles líklegur til afreka. Hann vann þrenn gullverðlaun á HM í fyrra og stefnir á fjögur gull á ÓL.
Hann ætlar sér einnig gull í 200
...