Hvítur á leik.
Hvítur á leik.

1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 Rf6 4. d3 d6 5. 0-0 a6 6. Bxc6+ bxc6 7. d4 exd4 8. Rxd4 c5 9. Rc6 Dd7 10. Ra5 Da4 11. De1 Be7 12. c4 Be6 13. f4 0-0 14. Bd2 Bd8 15. Bc3 De8 16. Rd2 c6 17. Rb7 De7 18. Rxd8 Haxd8 19. e5 dxe5 20. Dxe5 Hfe8 21. Hae1 Df8 22. Dg5 h6 23. Dg3 Bf5 24. Hxe8 Rxe8 25. Df3 De7 26. Df2 Rc7 27. He1 Re6

Staðan kom upp á lokuðu alþjóðlegu móti sem lauk fyrir skömmu í höfuðborg Úsbekistan, Tashkent. Sigurvegari mótsins, úsbeski stórmeistarinn Shamsiddin Vokhidov (2.624), hafði hvítt gegn indverskum kollega sínum Abhijeet Gupta (2.589). 28. g4! Bxg4 29. f5 Dg5 30. fxe6 fxe6 31. Re4 Dg6 32. Dg3 og svartur gafst upp. Lokastaða efstu manna varð þessi: 1. Shamsiddin Vokhidov 6 1/2 vinning af 9 mögulegum. 2. Alexandr Predke (2.667) 6 v. Tveir stórmeistarar deildu svo þriðja sætinu með 5 vinninga.