![Flinkur Ewan McGregor í hlutverki barónsins.](/myndir/gagnasafn/2024/07/24/4e8adba0-bc8c-426e-8e64-d44ece8ed577.jpg)
Karl Blöndal
Þáttaröðin Heldri maður í Moksvu (A Gentleman in Moscow) er aðgengileg á Sjónvarpi Símans um þessar mundir. Hún fjallar um rússneskan barón, sem dæma á til dauða í rússnesku byltingunni, en er þyrmt og skikkaður til ævilangrar vistar á Hótel Metrópól í Moskvu. Stigi hann skrefi út fyrir hótelið muni það kosta hann lífið.
Upphaflega átti Kenneth Branagh að leika baróninn, en það kom á endanum í hlut Ewans McGregors, sem gerir það af mikilli íþrótt og eru fínir sprettir í sögunni. Serían er gerð eftir samnefndri skáldsögu Amors Towles og baróninn mun vera hreinn uppspuni. Metrópólitan-hótelið er það hins vegar ekki. Það var reist um aldamótin 1900 og gegndi ýmsum hlutverkum í Sovétríkjunum.
Hótelið gegnir einnig lykilhlutverki í skáldsögunni Metropol eftir þýska rithöfundinn Eugen Ruge. Innblástur Ruges var lífshlaup ömmu hans, sem var líkt og baróninn skikkuð til að dúsa
...