Magnús Magnússon fæddist 19. október 1926 í Reykjavík. Hann lést 2. júlí 2024 á heimili sínu.

Foreldrar hans voru Magnús Skaftfjeld Halldórsson, f. 23. maí 1883, d. 7. ágúst 1976, og Steinunn Kristjánsdóttir, f. 16. desember 1893, d. 18. júní 1984. Systkin Magnúsar voru Halldór, framkvæmdastjóri hjá Skeljungi, f. 19. desember 1922, d. 22. ágúst 2011, og Sigríður, frönskukennari í Menntaskólanum í Reykjavík, f. 23. nóvember 1924, d. 15. desember 2020.

Hinn 9. september 1949 kvæntist Magnús Helgu Alice Vilhjálmsson, f. 15. ágúst 1926, d. 15. ágúst 2019. Foreldrar hennar voru Guðmundur Vilhjálmsson, f. 11. júní 1891, d. 26. september 1965, framkvæmdastjóri Eimskipafélags Íslands, og Kristín Thors Vilhjálmsson, f. 16. febrúar 1899, d. 27. júlí 1972. Börn þeirra eru: 1) Kjartan Guðmundur, f. 20. mars 1952, d. 13. janúar 2006. Eiginkona Kjartans er

...