Þaulreynd Ragna keppti í badminton 2008 og 2012.
Þaulreynd Ragna keppti í badminton 2008 og 2012.

Ragna Ingólfsdóttir keppti á leikunum í badminton árin 2008 í Peking og 2012 í London. Hún segist alltaf fylgjast vel með Ólympíuleikunum þegar þeir fara fram, og segist hafa mikla trú á íslenska liðinu í ár. „Ég held að Anton Sveinn McKee hafi alla burði til að standa sig frábærlega í ár, ég hef fylgst með honum í gegnum árin, enda var hann að keppa á sínum fyrstu leikum þegar ég var að keppa á mínum síðustu, árið 2012.“

Þar fyrir utan segist hún vera spenntust fyrir því að fylgjast með golfinu, og vonast til þess að Scheffler Scottie, sem spilar fyrir hönd Bandaríkjanna, beri sigur úr býtum í ár. „Svo var ég sjálf í fimleikum þannig að ég fylgist alltaf svolítið með þeim. Undanfarið hef ég líka verið að horfa á þætti sem

...