Yðar einlægur fór í listflug yfir Reykjavík um daginn. Það var gaman, en hitt leiðinlegra hvað borgin er skelfilega ljót ásýndar; bæði skipulag og hús. Litla Múrmansk. Það á auðvitað ekki við um borgina alla, því gömlu hverfin eru mun fallegri
![Austurvöllur Jafnvel hér hefur margt breyst.](/myndir/gagnasafn/2024/07/25/30cca017-2f71-4ec9-adcd-1b2f3b8c9fa0.jpg)
Austurvöllur Jafnvel hér hefur margt breyst.
— Loftur Guðmunddson
Andrés Magnússon
Andrés Magnússon andres@mbl.is
Yðar einlægur fór í listflug yfir Reykjavík um daginn. Það var gaman, en hitt leiðinlegra hvað borgin er skelfilega ljót ásýndar; bæði skipulag og hús. Litla Múrmansk.
Það á auðvitað ekki við um borgina alla, því gömlu hverfin eru mun fallegri. Eins og nútíminn hafi gengið í garð á skítugum skónum um miðja 20. öld og traðkað svo vel að ég get vottað að borgin er fallegri á hvolfi.
Það var því einstaklega gaman að sjá stundarlangan þátt í Ríkissjónvarpinu (frumsýndan 17. júní), klipptan saman úr efni sem Loftur Guðmundsson ljósmyndari tók af Reykjavík 1944. Þó það væru dátar á götunum og kampar hér og hvar, var bæjarbragurinn allur annar og greinilegt á nýbyggingum
...