Ég held að tilfinningarnar í kvikmyndinni séu kannski það róttækasta við hana,“ segir Levy.
Vinátta Ryan Reynolds og Hugh Jackman eru greinilega mestu mátar og gerðu góðlátlegt grín hvor að öðrum.
Vinátta Ryan Reynolds og Hugh Jackman eru greinilega mestu mátar og gerðu góðlátlegt grín hvor að öðrum. — Ljósmynd/StillMoving.Net. The Walt Disney Company Limited

Viðtal

Snædís Björnsdóttir

snaedis@mbl.is

Sprelligosinn Deadpool er snúinn aftur og mætir þekktu ofurhetjunni Wolverine í nýjustu kvikmyndinni frá Marvel, Deadpool & Wolverine, sem frumsýnd var í gær. Í kvikmyndinni takast hetjurnar tvær á við hið gríðarstóra verkefni að bjarga heiminum og segir hún frá vináttu þeirra og átökum. Morgunblaðinu bauðst að taka þátt í blaðamannafundi um kvikmyndina á dögunum.

Fundurinn fór fram í London og voru hátt í tvö hundruð blaðamenn víðsvegar að úr heiminum viðstaddir ýmist í persónu eða í gegnum fjarfundarbúnað á netinu. Blaðamaður Morgunblaðsins tók þátt í gegnum netið og var fyrirkomulagið með þeim hætti að þátttakendur sendu inn spurningar sem öllum var frjálst að nota að vild.

...