![Verðbólga Tólf mánaða verðbólga mælist óvænt hærri en spáð var.](/myndir/gagnasafn/2024/07/25/5dc39efe-4842-414e-b0d8-2973c4d7cb6c.jpg)
Hagfræðideildir Landsbankans og Íslandsbanka spá 6,2% ársverðbólgu í ágúst. Verðbólga tók óvæntan kipp í júlí og mælist ársverðbólga 6,3% sem er hærra en báðar deildirnar gerðu ráð fyrir. Ársverðbólga mældist 5,8% í síðasta mánuði.
„Munurinn á okkar spá og endanlegri tölu liggur einna helst í því að útsölur voru aðeins verri en við gerðum ráð fyrir,“ sagði Una Jónsdóttir, forstöðumaður hagfræðideildar Landsbankans, í samtali við mbl.is í gær.
Jafnframt sagði hún aðaldrifkraft verðbólgunnar vera húsnæðismarkaðurinn.
„Það skýrir að mestu hækkunina úr 5,8% í 6,3%, en við sjáum merki þess að það sé talsverð spenna á húsnæðismarkaði,“ sagði Una.
Hún sagðist telja litlar líkur á að Seðlabankinn teldi tímabært að lækka stýrivexti fyrr en í fyrsta lagi í nóvember.
„Því við sjáum litlar breytingar fram á við og miðað við okkar spá verður ennþá 5,6% verðbólga í október. Bara rétt undir 6% sem er svipað
...