![Slagur Átök í fyrsta leik á ÓL milli Ástralíu og Samóa í gær.](/myndir/gagnasafn/2024/07/25/255b7025-d0b8-4f5b-a7ca-6e882e59bb36.jpg)
Slagur Átök í fyrsta leik á ÓL milli Ástralíu og Samóa í gær.
— AFP/Carl de Souza
Sjö manna rúgbí er ekki mjög þekkt íþrótt en fær talsverða athygli í upphafi Ólympíuleika. Fyrstu leikirnir fóru fram í Frakklandi í gær en þetta er í þriðja sinn sem íþróttin er á leikunum og lið Fidji-eyja vann gullið í tvö fyrstu skiptin, 2016 og 2021.
Talið er að Frakkar verði skæðustu keppinautar Fidji-manna en liðin eru saman í riðli og mætast í dag.
Ástralía vann Samóa í fyrsta leik keppninnar á troðfullum Stade de France í gær, 21:14, og forráðamenn íþróttarinnar sögðu að hún hefði aldrei notið annarrar eins athygli á heimsvísu.