Arsenal Riccardo Calafiori er háttskrifaður miðvörður frá Ítalíu.
Arsenal Riccardo Calafiori er háttskrifaður miðvörður frá Ítalíu. — AFP

Enska knattspyrnufélagið Arsenal hefur samið við Bologna á Ítalíu um kaup á ítalska varnarmanninum Riccardo Calafiori. Hann er 22 ára miðvörður sem var í liði Ítalíu á EM í Þýskalandi í sumar og spilaði alla fjóra leikina eftir að hafa leikið sinn fyrsta A-landsleik í byrjun júní. Kaupverðið er talið vera 42 milljónir punda en Calafiori átti í gær eftir að gangast undir læknisskoðun hjá Arsenal og skrifa undir samninginn.