Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir
Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir

Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir, söngkona, stofnandi og stjórnandi Sönghátíðarinnar í Hafnarborg, hefur verið ráðin nýr skólastjóri Söngskólans í Reykjavík frá og með 1. ágúst. Hún tekur við starfinu af Ólöfu Kolbrúnu Harðardóttur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá skólanum.

Guðrún stundaði söngnám við Tónlistarskólann í Reykjavík og Guildhall School of Music and Drama í London. Hún hefur verið gjaldkeri og ritari Félags íslenskra tónlistarmanna og er núverandi formaður Félags íslenskra söngkennara.