Hanna Brynja Axelsdóttir fæddist á Ólafsfirði 11. júlí 1949. Hún lést á Spáni 11. júlí 2024 í faðmi fjölskyldunnar.

Foreldrar hennar voru Pétur Axel Pétursson sjómaður, f. 4.1. 1912 í Haganeshreppi Skagafirði, d. 23.4. 1960, og Petrea Aðalheiður Rögnvaldsdóttir, húsfreyja og fiskverkakona, f. 16.11. 1908 í Tungu í Fljótum, d. 15.3. 2008.

Hanna var ein níu systkina. Hin voru Rögnvaldur Kristinn, f. 27.6. 1935, d. 15.8. 1935, Ragnar Guðbjörn, f. 3.6. 1936, d. 23.2. 2008, Rögnvaldur Kristinn, f. 15.10. 1937, d. 18.4. 1957, Ásta Bjarnheiður, f. 31.12. 1938, Sveinbjörn, f. 30.5. 1940, d. 2.12. 2020, Sæunn Halldóra. f. 25.2. 1942, d. 12.9. 2022, Sigurrós, f. 12.5. 1943, d. 19.2. 1944, og Lára Sigurbjörg, f. 23.6. 1945.

Eiginmaður Hönnu var Jón Þór Björnsson verkfræðingur, f. 17.2. 1945, d. 5.7. 2022.

...