Þrjár nýjar tegundir smádýra fundust í árlegum Surtseyjarleiðangri Náttúrufræðistofnunar. Fíflalús, dverglodda og mýrasnigill. Olga Kolbrún Vilmundardóttir leiðangursstjóri segir að Surtsey taki stöðugum breytingum milli ára
![Fuglalíf Fýlsungi vel falinn í baldursbrá í gígbarmi Surts. Engin grágæs sást í ár og minna af svartbaki og sílamávi.](/myndir/gagnasafn/2024/07/26/12bbde22-5a37-4dd7-88a4-92db789ae03b.jpg)
Fuglalíf Fýlsungi vel falinn í baldursbrá í gígbarmi Surts. Engin grágæs sást í ár og minna af svartbaki og sílamávi.
— Ljósmynd/Olga Kolbrún Vilmundardóttir
Óskar Bergsson
oskar@mbl.is
Þrjár nýjar tegundir smádýra fundust í árlegum Surtseyjarleiðangri Náttúrufræðistofnunar. Fíflalús, dverglodda og mýrasnigill. Olga Kolbrún Vilmundardóttir leiðangursstjóri segir að Surtsey taki stöðugum breytingum milli ára. Yfirleitt sjáist breytingar á gróðurfari, vegna gróðurframvindu, gróðureyðingar, landbrots og líka séu breytingar á fuglalífi.
„Það fundust engar nýjar plöntutegundir í ár. Í þetta sinn fórum við um eyna og skráðum allar tegundir í
...