Valskonur náðu í fyrrakvöld þriggja stiga forskoti á Breiðablik á toppi Bestu deildar kvenna í fótbolta með öruggum sigri á Tindastóli á Sauðárkróki, 4:1.

Þór/KA lagði botnlið Keflavíkur, 1:0, suður með sjó með glæsilegu marki Huldu Óskar Jónsdóttur.

Stjarnan vann FH í Kaplakrika, 2:1, eftir mikla dramatík þar sem Andrea Mist Pálsdóttir skoraði markið í uppbótartíma.

Tindastóll – Valur 1:4

0:1 Jasmín Erla Ingadóttir 19.

1:1 Elísa Bríet Björnsdóttir 27.

1:2 Jasmín Erla Ingadóttir 63.

1:3 Berglind Björg Þorvaldsdóttir 73.

...