![Umdeildur Pílustaðurinn Skor í miðbæ Reykjavíkur nýtur vinsælda.](/myndir/gagnasafn/2024/07/26/b3672577-637b-4c2b-8436-93be4a4c1481.jpg)
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Skemmtistaðurinn Skor við Geirsgötu í Reykjavík fær ekki að hafa opið til klukkan eitt á nóttunni um helgar og til klukkan 23 á virkum dögum. Ákvörðun Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur um að aflétta takmörkunum á afgreiðslutíma staðarins frá því í febrúar á þessu ári hefur verið felld úr gildi samkvæmt ákvörðun úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála sem tekin var á fundi nefndarinnar á miðvikudag. Segir nefndin að engar hljóðmælingar styðji ákvörðun um lengri afgreiðslutíma.
Styr hefur staðið um Skor, sem er pílustaður sem nýtur mikilla vinsælda hjá ungu fólki, síðustu ár. Íbúar á efri hæðum hússins hafa frá upphafi kvartað undan hávaða, steikarbrælu og ýmiss konar ónæði þaðan. Einn íbúa kærði ákvörðun heilbrigðiseftirlitsins til úrskurðarnefndarinnar.
Í málsrökum íbúans kemur fram að starfsemi Skors byggist á hávaða sem meðal annars feli í
...