Slæmur fyrri hálfleikur fór illa með möguleika Breiðabliks gegn Drita frá Kósóvó í 2. umferð undankeppni Sambandsdeildar karla í fótbolta þegar liðin léku fyrri leik sinn á Kópavogsvelli í gærkvöld. Drita komst þá í 2:0 en Blikar eiga enn þokkalega…
![Kópavogur Höskuldur Gunnlaugsson í baráttu við þrjá leikmenn Drita.](/myndir/gagnasafn/2024/07/26/e1a00225-da8f-473d-a88f-2b91d43881b6.jpg)
Kópavogur Höskuldur Gunnlaugsson í baráttu við þrjá leikmenn Drita.
— Ljósmynd/Kristinn Steinn
Breiðablik
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Slæmur fyrri hálfleikur fór illa með möguleika Breiðabliks gegn Drita frá Kósóvó í 2. umferð undankeppni Sambandsdeildar karla í fótbolta þegar liðin léku fyrri leik sinn á Kópavogsvelli í gærkvöld.
Drita komst þá í 2:0 en Blikar eiga enn þokkalega möguleika eftir að hafa lagað stöðuna í 2:1 í síðari hálfleiknum og þeir voru afar nærri því að jafna metin.
Liðin mætast aftur í Kósóvó á þriðjudaginn kemur og þar ráðast úrslitin en Blikar verða að vinna tveggja marka sigur, eða þá ná í vítaspyrnukeppni eftir eins marks sigur, til að komast í þriðju umferðina.
Blikar fengu kjaftshögg strax á 3. mínútu þegar Arb Manaj skoraði eftir góða sókn Dritamanna
...