![Flugrekstur Einar Örn Ólafsson, forstjóri Play, er einn stærsti eigandi Play.](/myndir/gagnasafn/2024/07/26/f26c690a-bcc7-4f15-a30c-fa4e4131e26d.jpg)
Tap flugfélagsins Play nam á öðrum ársfjórðungi rúmlega átta milljónum bandaríkjadala, eða um 1,1 milljarði króna á núverandi gengi. Tap félagsins á fyrri helmingi ársins nemur þá tæpum 30 milljónum dala, eða tæplega 4,1 milljarði króna á núverandi gengi, og hefur aukist um 7,5 milljónir dala á milli ára.
Í uppgjöri félagsins, sem birt var í gær, kemur fram að tekjur Play á tímabilinu námu 78,3 milljónum dala og jukust um 7% á milli ára. Tekjur félagsins á fyrri helmingi ársins námu þannig tæpum 133 milljónum dala og hafa aukist um tæpar 27 milljónir dala á milli ára. Kostnaður hefur þó einnig aukist en rekstrarútgjöld félagsins námu 67,3 milljónum dala á öðrum ársfjórðungi og jukust um tæpar níu milljónir dala á milli ára. Rekstrarkostnaður á fyrri helmingi ársins nemur tæpum 127 milljónum dala og hefur aukist um tæpar 29 milljónir dala á milli ára. Þá námu afskriftir um 15,5 milljónum dala
...