Fyrsta kvikmynd leikstjórans Lilju Ingólfsdóttur í fullri lengd, hin norska Elskling (sem á íslensku væri þá Elskuleg eða Elskan), uppskar vel á hinni virtu kvikmyndahátíð Karlovy Vary í Tékklandi þann 6
![Fögnuður Lilja, hægra megin, með aðalleikkonu myndarinnar, Helgu Guren, á hátíðinni í Tékklandi.](/myndir/gagnasafn/2024/07/26/78bd09d6-17cf-43a0-a114-4a57b25a8ca5.jpg)
Fögnuður Lilja, hægra megin, með aðalleikkonu myndarinnar, Helgu Guren, á hátíðinni í Tékklandi.
— Ljósmynd/Nordisk film
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Fyrsta kvikmynd leikstjórans Lilju Ingólfsdóttur í fullri lengd, hin norska Elskling (sem á íslensku væri þá Elskuleg eða Elskan), uppskar vel á hinni virtu kvikmyndahátíð Karlovy Vary í Tékklandi þann 6. júlí síðastliðinn. Var myndin ein þeirra sem kepptu um Kistalshnöttinn svonefnda í aðalkeppni hátíðarinnar og hlaut sérstök verðlaun dómnefndar, verðlaun fyrir bestu leikkonu (Helga Guren), verðlaun dómnefndar Samtaka evrópskra kvikmyndahúsa (Europa Cinemas Label Jury Award), Samtaka evrópskra kvikmyndagagnrýnenda (FIPRESCI) og einnig verðlaun á vegum kirkjunnar. Mun þetta vera fyrsta myndin sem hlýtur öll þessi fimm verðlaun í sögu hátíðarinnar.
Marglaga og ekki gallalaus
Lilja segir að
...