Gunnar Axel Axelsson
Gunnar Axel Axelsson

Gunnar Axel Axelsson, bæjarstjóri sveitarfélagsins Voga, segir að tímabært sé að yfirfara lögheimilisskráningu Grindvíkinga enda séu nær allir bæjarbúar fluttir í önnur sveitarfélög. Þar af hafi um 200 Grindvíkingar flutt í Voga.

„Við höfum kallað eftir því að þessi mál verði skýrð án frekari tafa og lögheimilisskráning færð í rétt horf, enda hefur það veruleg áhrif á rekstrarforsendur okkar sveitarfélags þegar um 10% íbúanna greiða sína skatta og gjöld annars staðar,“ segir hann. » 10