— The Rise and Fall of a Midwestern Princess.

Það eru fáir sem standa jafn mikið út úr í eintóna poppsenu nútímans eins og hin 26 ára tónlistarkona Chappell Roan. Hún hefur verið í bransanum í um tíu ár, en hefur undanfarið ár vakið meiri athygli en yfir allan ferilinn samanlagt. Ástæðan að baki er auðvitað fyrsta platan hennar, The Rise and Fall of a Midwest Princess, sem kom út um haustið í fyrra.

Nú stendur yfir tónleikaferðalag hjá Chappell, sem stendur allavega yfir til næsta árs og bætist sífellt við í tónleikana.

Tónlistarkonan er með vægast sagt einstakan stíl, bæði í laga- og textagerð, svo og í fatastíl og framkomu. Lögin hennar eru ýkt og minna smá á slagara Madonnu frá níunda áratugnum, en með

...