Svartfellski handboltamarkvörðurinn Darija Zecevic er gengin til liðs við Fram og hefur samið við félagið um að leika með því á komandi keppnistímabili. Darija hefur leikið hér á landi frá 2019 en hún kom frá Danilovgrad í heimalandi sínu til ÍBV…
Fram Darija Zecevic hefur leikið hér á landi undanfarin fimm ár.
Fram Darija Zecevic hefur leikið hér á landi undanfarin fimm ár. — Ljósmynd/Sigfús Gunnar

Svartfellski handboltamarkvörðurinn Darija Zecevic er gengin til liðs við Fram og hefur samið við félagið um að leika með því á komandi keppnistímabili. Darija hefur leikið hér á landi frá 2019 en hún kom frá Danilovgrad í heimalandi sínu til ÍBV árið 2019 og var þar í tvö ár en hefur síðan spilað með Stjörnunni. Á þessum árum hefur hún verið einn besti markvörður úrvalsdeildarinnar. Þá var Darija á meðal leikenda í sjónvarpsþáttunum Aftureldingu.