Bandarísk stjórnmál urðu skyndilega allt önnur en nokkur hafði gert ráð fyrir, ef að til að mynda sé horft til síðustu áramóta.

Nú er komið á daginn að síðustu misserin hefur Joe Biden forseti Bandaríkjanna verið allt annar en bæði hann, fjölskylda hans og og stuðningsmenn hans, embættismenn og sérfræðingar vildu vera láta, svo ekki sé litið til bandarískra fjölmiðla, sem sumir hverjir vilja enn að einhverjir taki enn eftir þeim, og taki jafnvel mark á þeim. En flestum þessara miðla hefur farið skelfilega aftur á fáeinum árum. Nánast allir sem að forsetnum komu, háir sem lágir, tóku þátt í blekkingunni, sem líkist samsæri meira en nokkru öðru. Nú er orðið augljóst að mörg helstu fyrirmenni heimsins, og þá ekki síst í Evrópu, gátu ekki annað en séð að Biden forseti „gekk ekki á öllum“ eins og það er orðað núna. Um þetta var hvíslað lágt en lengi á milli helstu

...