Katrín Jakobsdóttir
Katrín Jakobsdóttir

Katrín Jakobsdóttir fyrrverandi forsætisráðherra afhenti nýlega Þjóðskjalasafni Íslands um 12 hillumetra skjala úr einkasafni sínu.

Katrín segir um að ræða óflokkuð skjöl allt frá tíma sínum sem varaborgarfulltrúi í kringum 2005 eða 2006 til dagsins í dag. Á þeim tíma hefur Katrín gegnt þingmennsku, formennsku í VG, embætti menntamálaráðherra og samstarfsráðherra Norðurlanda og nú síðast embætti forsætisráðherra. Segir hún það verkefni svo bíða sín í ágúst að flokka skjölin með aðstoð Þjóðskjalasafnsins.

Safnari í eðli sínu

Segist Katrín vera safnari í eðli sínu og hún hafi geymt ýmsa pappíra. Nú sé kominn tími til að fara í gegnum skjölin og vega og meta hvað eigi að geyma fyrir sagnfræðinga framtíðarinnar. „Mér finnst mikilvægt að sagnfræðingar framtíðarinnar hafi efnivið til að vinna úr þegar þeir

...