Reynir Vilhjálmsson var fæddur 7. ágúst 1934 og lést 7. júlí 2024.

Útförin var frá 16. júlí 2024.

Elsku pabbi.

Nú ertu farinn í sumarlandið eftir erfið veikindi, í faðm burtfarinna ættingja og vina. Það er skrítin tilfinning að við heyrumst hvorki né sjáumst meira, en góðar minningar hrannast upp við það eitt að hugsa til þín.

Efst er mér í huga þakklæti fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig í gegnum lífið. Við tvö áttum einstaklega gott samband okkar á milli. Alltaf varst þú tilbúinn að aðstoða ef þurfti og ég reyndi mitt besta til að aðstoða þig á móti eins og ég gat.

Þú elskaðir lífsstarfið þitt afskaplega mikið og þú vissir ungur hvað þú vildir læra og vinna við. 15 ára gamall í Noregi færðu áhugann á gróðri og ræktun

...