Anna Þuríður Ingólfsdóttir fæddist 25. júlí 1946. Hún lést 12. júlí 2024.

Útför hennar fór fram 25. júlí 2024.

Látin er fyrir aldur fram eftir langvarandi veikindi kær tengsla- og fjölskylduvinur, Anna Þuríður Ingólfsdóttir.

Anna var lífsglöð og glæsileg kona sem naut samveru með fjölskyldu sinni og vinum.

Hún var myndarleg húsmóðir og lagði kapp á að hafa heimili sitt sem hlýlegast ásamt Magnúsi eiginmanni sínum.

Minning um Önnu er okkur kær og ljúf úr afmælisveislum, jólaboðum, útskriftum sem oftar.

Það geislaði ætíð af henni stolt yfir barnabörnunum, fjölskyldu sinni og vinum.

Það tekur á hjá fjölskyldum þegar erfið veikindi ber að eins og

...