Ólafur Magnússon frá Höskuldarkoti í Njarðvík fæddist 5. október 1930. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 14. júlí 2024.

Foreldrar hans voru Magnús Ólafsson útvegsbóndi og Þórlaug Magnúsdóttir húsmóðir. Systkini Ólafs eru Friðrik Jón, f. 28. september 1925, d. 7. ágúst 1929, Anna Fríða, f. 20. maí 1928, d. 27. ágúst 2019, Friðrik Ársæll, f. 23. ágúst 1929, d. 21. maí 2006, Garðar, f. 5. október 1930, Baldur, f. 5. janúar 1935, d. 26. september 1938, og Magnús, f. 7. apríl 1941, d. 25. apríl 2019.

Ólafur kvæntist Guðbjörgu Stefaníu Daníelsdóttir frá Hlíðarhúsum í Reykjavík, f. 14. maí 1931, þann 19. september 1953. Dóttir þeirra er Þórlaug Erna, f. 22. ágúst 1957, maki Ingvi Jón Kjartansson, f. 27. september 1956. Börn: 1) Lísa Einarsdóttir, f. 26. júní 1971, maki Teitur Örlygsson. Börn þeirra eru a) Erna Lind, f. 17. desember 1992,

...