Marvel-ofurhetjumyndin Deadpool & Wolverine fellur vel í kramið vestanhafs. Samkvæmt upplýsingum frá The Hollywood Reporter var nýafstaðin frumsýningarhelgi myndarinnar í Bandaríkjunum sú tekjuhæsta það sem af er ári og áttunda tekjuhæsta…
Glaðir Ryan Reynolds og Hugh Jackman á Comic Con International.
Glaðir Ryan Reynolds og Hugh Jackman á Comic Con International. — AFP/Chris Delmes

Marvel-ofurhetjumyndin Deadpool & Wolverine fellur vel í kramið vestanhafs. Samkvæmt upplýsingum frá The Hollywood Reporter var nýafstaðin frumsýningarhelgi myndarinnar í Bandaríkjunum sú tekjuhæsta það sem af er ári og áttunda tekjuhæsta frumsýningarhelgin síðan mælingar hófust. Myndin, sem skartar þeim Ryan Reynolds og Hugh Jackman í titilhlutverkunum skilaði þannig 205 milljónum bandaríkjadala í kassann, sem samsvarar um 28 milljörðum íslenskra króna.