Pétur Þór Gunnarsson fæddist 12. september 1958. Hann lést 28. júní 2024.

Útför fór fram 18. júlí 2024.

Nú kveðjum við elsku Pétur Þór bróður okkar, sem lést 28. júní síðastliðinn eftir löng og erfið veikindi. Það var erfitt að sjá mömmu okkar horfa upp á son sinn verða svona veikan, en hún stóð við hlið hans eins og klettur allan tímann ásamt Guðmundi manni sínum og fjölskyldunni.

Pétur var litrík persóna og óhræddur við að klæða sig á óhefðbundinn hátt. Hann var mikill listamaður og verk hans prýða veggi margra í fjölskyldunni. Hann hafði geislandi framkomu og bræddi alla með fallegu brosi sínu. Þrátt fyrir að Pétur hafi ekki alist upp með okkur áttum við góð tengsl við hann. Það var alltaf gaman að heimsækja hann í Mosfellssveitina, þar sem hann bjó hjá föðurfjölskyldu sinni. Einnig heimsótti

...