Jóhann Þorkell Ólafsson fæddist í Reykjavík 3. desember 1941. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Sléttunni 14. júlí 2024.

Foreldrar hans voru Elín Elísabet Júlíusdóttir, f. 28. júlí 1912, d. 3. júlí 1992 og Ólafur Jóhannsson, f. 28. janúar 1908, d. 10. febrúar 1996. Þau skildu.

Hálfbróðir Jóhanns, samfeðra, er Ragnar Ólafsson, f. 1954.

Eiginkona Jóhanns er Sigrún Löve, f. 9. janúar 1942. Þau gengu í hjónaband 25. maí 1963. Þau eignuðust þrjú börn. Þau eru: 1) Karl, f. 7. febrúar 1963. Sambýliskona hans er Ingibjörg Dóra Hilmarsdóttir, f. 1966. Fyrri eiginkona Karls er Laila Þorsteinsdóttir, f. 1964. Börn Karls og Lailu eru Karl Jóhann, f. 1987, Haukur Már, f. 1990 og Karen Eva, f. 2000. Barnabarn þeirra er Tinna Gabríela, f. 2019. 2) Elín Elísabet, f. 20. febrúar 1964. Eiginmaður hennar er

...