Bóndinn á Herjólfsstöðum í Álftaveri telur að eitthvað af sauðfé hafi orðið jökulhlaupinu, sem hófst í Mýrdalsjökli á laugardag, að bráð. Það sé þó ekki hægt að vita með vissu fyrr en eftir smölun í haust
![Hlaup Jökulhlaupið á laugardag olli miklum skemmdum á veginum.](/myndir/gagnasafn/2024/07/30/46a3a58c-9450-448f-8e4e-924ee3b6c9c7.jpg)
Hlaup Jökulhlaupið á laugardag olli miklum skemmdum á veginum.
— Morgunblaðið/Hákon
Hermann Nökkvi Gunnarsson
hng@mbl.is
Bóndinn á Herjólfsstöðum í Álftaveri telur að eitthvað af sauðfé hafi orðið jökulhlaupinu, sem hófst í Mýrdalsjökli á laugardag, að bráð. Það sé þó ekki hægt að vita með vissu fyrr en eftir smölun í haust.
„Mér finnst rökrétt að halda að það hafi að einhverju leyti verið slíkar aðstæður sem urðu þess valdandi að það tapaðist [sauðfé],“ segir Jóhannes Gissurarson bóndi á Herjólfsstöðum í samtali við
...