Vinkonur Mollie O'Callaghan og Ariarne Titmus.
Vinkonur Mollie O'Callaghan og Ariarne Titmus. — AFP/Francois-Xavier Marit

Mollie O'Callaghan vann gull og sló í leiðinni ólympíumetið í 200 metra skriðsundi kvenna í París í gærkvöld. Metið tók hún af samlöndu sinni Ariarne Titmus sem hafnaði í öðru sæti. Hún er heimsmethafinn, en metið setti hún í Brisbane fyrr á þessu ári. O'Callaghan kom í mark á tímanum 1:53,27 mínútur en met Titmus var 1:53,50 mínútur. Í þriðja sæti varð Slobhan Bernadette Haughey frá Hong Kong.