— Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson

Þau Þór Bæring, Bolli Már og Kristín Sif komu fram á skemmtikvöldi á Siglufirði á fimmtudaginn. Hituðu þau upp fyrir kvöldið á fimmtudagsmorgninum með því að hringja í Siglfirðinga sem skráðir eru með skemmtileg atvinnuheiti á ja.is. Þór hafði tekið saman þrjár manneskjur til að kynna fyrir Bolla, Kristínu og hlustendum K100. Síðasta manneskjan sem Þór kynnti var kona sem heitir Hólmfríður en hún kvaðst vera svokölluð Birgittukona. Þríeykið velti fyrir sér hvort það þýddi að hún væri mikill aðdáandi söngkonunnar Birgittu Haukdal. Meira um þetta á k100.is.