Vinirnir Haukur Leó Styrmisson og Angelo Snær Klemensson Semey héldu tombólu til að safna fyrir Rauða krossinn á Íslandi. Tombólan fór fram fyrir utan Krónuna og Kringluna og þeir náðu alls að safna 4.150 krónum sem Haukur afhenti Rauða krossinum.