Kristjana Laufey Ásgeirsdóttir fæddist í Reykjavík 8. mars 1954. Hún lést á Landspítala háskólasjúkrahúsi í Fossvogi 20. júlí 2024.

Foreldrar hennar eru Ásgeir Þorsteinsson sjómaður, f. 9.8. 1920, d. 9.8. 1996, og Ásta Sigurðardóttir húsmóðir, f. 26.9. 1921, d. 24.12. 2013. Þau bjuggu lengst af í Skólagerði 6a í Kópavogi.

Systkini Kristjönu eru Ragnar Örn, f. 9.1. 1946, d. 8.2. 2001, eiginkona hans er Jónína Ágústdóttir. Börn þeirra eru Berglind, Ágúst Þór og Svala. Barnabörnin eru átta og eitt barnabarnabarn. Þorsteinn, f. 28.5. 1947, eiginkona hans er Ingibjörg Ásgrímsdóttir. Börn þeirra eru Ásta, Ásgrímur Smári og Ásgeir Örn. Barnabörn þeirra eru ellefu og eitt barnabarnabarn. Helga, f. 7.2. 1950, eiginmaður hennar er Einar Thorlacius. Börn þeirra eru Nadine Guðrún, Þórdís Ásta og Steinunn Erla. Þau eiga sex barnabörn. Sigurður, f. 2.11.

...