![Hálendið Stórbrotið sjónarspil þegar gengið er yfir Fimmvörðuháls.](/myndir/gagnasafn/2024/07/31/e30b3e55-312a-4956-8acc-ffd516a72857.jpg)
Sæþór Már Hinriksson
saethor@mbl.is
Þrátt fyrir að hafa orðið var við samdrátt í ferðaþjónustunni annars staðar en á hálendi landsins hefur Stefán Jökull Jakobsson, umsjónarmaður skála hjá Ferðafélagi Íslands, séð stöðuga og góða traffík á hálendinu í sumar. „Það hefur verið mikil og góð göngutraffík á Laugaveginum og líka mjög mikil uppi á Kili,“ segir Stefán. Hann bætir við að þrátt fyrir kulda, rigningu og mikinn vind hafi sumarið verið mjög gott heilt yfir.
Meirihluti ferðalanganna er útlendingar, þó einstaka Íslendingar séu einnig á ferli. Stefán bendir á að langflestir séu vel búnir og undirbúnir fyrir göngurnar, en þó komi fyrir að fólk mæti í gallabuxum, án húfu og vettlinga. Hann nefnir að slíkir ferðalangar stoppi oft í næsta skála til að kaupa nauðsynlegan útbúnað áður en þeir
...