Allt tilbúið Búið er að umbreyta þingsal Alþingis fyrir athöfnina sem fram fer á morgun.
Allt tilbúið Búið er að umbreyta þingsal Alþingis fyrir athöfnina sem fram fer á morgun. — Morgunblaðið/Eyþór

Embættistíð Guðna Th. Jóhannessonar, fráfarandi forseta Íslands, lýkur með formlegum hætti á miðnætti í kvöld, og munu þá handhafar forsetavaldsins, þ.e. forseti Hæstaréttar, forsætisráðherra og forseti Alþingis, sinna embættisskyldum hans fram að embættistöku Höllu Tómasdóttur tilvonandi forseta.

Forsetinn hefur boðað til ríkisráðsfundar á Bessastöðum í dag. Þar verður farið yfir lagatillögur frá ráðherrum, og mun hann endurstaðfesta lög sem hann hefur áður undirritað, líkt og venja er fyrir. Að fundinum loknum mun forsetinn svo kveðja ríkisstjórnina

...