Sundmaðurinn Anton Sveinn McKee, einn fremsti íþróttamaður landsins undanfarinn áratug, kvaddi stærsta sviðið í gærkvöldi er hann hafnaði í 15. sæti í undanúrslitum í 200 metra bringusundi á Ólympíuleikunum í París
Kveðjustund Anton Sveinn McKee virðir fyrir sér lokastöðuna í 200 metra bringusundinu eftir að hann kom í mark í síðasta skipti á Ólympíuleikum.
Kveðjustund Anton Sveinn McKee virðir fyrir sér lokastöðuna í 200 metra bringusundinu eftir að hann kom í mark í síðasta skipti á Ólympíuleikum. — Morgunblaðið/Kristinn Magnússon

Jóhann Ingi Hafþórsson

johanningi@mbl.is

Sundmaðurinn Anton Sveinn McKee, einn fremsti íþróttamaður landsins undanfarinn áratug, kvaddi stærsta sviðið í gærkvöldi er hann hafnaði í 15. sæti í undanúrslitum í 200 metra bringusundi á Ólympíuleikunum í París. Var sundið það síðasta á ferlinum hjá Antoni á Ólympíuleikum.

Hann vildi þó ekki staðfesta að sundhettan væri alveg komin á hilluna er hann ræddi við Morgunblaðið eftir sundið, en ljóst er að Anton keppir ekki á fleiri Ólympíuleikum. Leikarnir í París voru hans fjórðu og síðustu leikar en hann var áður með

...