— Morgunblaðið/Hákon

Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands tók á móti 300 gestum á Bessastöðum í gær. Var þetta síðasta móttaka Guðna í embættistíð hans sem lýkur formlega á miðnætti. Gestirnir voru starfsmenn sem hafa komið að gerð varnargarða á Reykjanesskaga og verndun innviða þar.

Yfir 80 fyrirtæki hafa átt aðild að því. Þakkaði Guðni fólkinu fyrir að hafa staðið vaktina síðustu mánuði. » 4