Unnar Karl Halldórsson, eigandi og framkvæmdastjóri Lóðaþjónustunnar ehf., fæddist í Reykjavík 12. október 1973. Hann lést á Landspítalanum 20. júlí 2024 eftir nokkurra mánaða baráttu við illvíg veikindi.

Foreldrar Unnars eru Halldór Þorsteinsson, f. 5. mars 1946, og Sigrún Karlsdóttir, f. 23. febrúar 1947. Bróðir Unnars er Hrólfur Árni Borgarsson, f. 22. mars 1970. Eiginkona Hrólfs er Helga Lind Magnúsdóttir, f. 23. ágúst 1974, og börn þeirra eru Alex Örn, f. 12. október 1995, Atli Örvar, f. 22. desember 2001, og Karen Sól, f. 12. október 2004. Systir Unnars var Hugrún, f. 2. febrúar 1995, d. 12. október 1996.

Eiginkona Unnars Karls er Guðlaug Helga Jónasardóttir, eigandi Lóðaþjónustunnar ehf. og verkefnastjóri, f. 29. ágúst 1971. Synir Unnars og Helgu eru: 1) Fannar Örn, f. 23. desember 1994, unnusta hans er Nikolina Kuczynska. 2) Fjölnir Máni,

...