Sverrir Örn Sigurjónsson fæddist á bænum Kolsholtshelli í Flóanum 12. júní 1949. Hann lést á Diakonhjemmet sykehus í Ósló 26. júní 2024.

Foreldrar hans eru hjónin Sigurjón Guðmundsson, f. 12.10. 1924, d. 8.5. 2019, og Svanfríður Vigdís Jónasdóttir, f. 29.11. 1928. Systkini Sverris eru Guðmundur Kristinn, f. 14.9. 1951, Hafsteinn, f. 24.3. 1958, og Marta Kristín, f. 12.8. 1970.

Sverrir gekk í hjónaband með Þórdísi Guðmundsdóttur, f. 2.11. 1945, þann 8. apríl 1978, en þau slitu samvistum árið 1992. Börn þeirra eru: 1) Hrafnhildur, f. 10.4. 1972, eiginmaður hennar er Þorvaldur Sæmundsen, f. 22.2. 1972, og þeirra börn eru Elma Rún, f. 25.8. 2018, og Einar Árni, f. 12.12. 2021, en Þorvaldur á dóttur, Elsu Karen, f. 22.3. 2000. 2) Kjartan, f. 5.1. 1978, eiginkona hans er Berglind Jónfríður Richardsdóttir, f. 9.10. 1979, og þeirra börn eru Tinna María,

...