![Viska Guðbergur hefur margt til síns máls.](/myndir/gagnasafn/2024/08/01/56b46f6e-dbb2-4262-9eaa-f510db89285a.jpg)
María Margrét Jóhannsdóttir
Viðhorf til sjónvarpsgláps geta verið af ólíkum toga. Flestir líta niður á heilalaust Netflix-gláp en sitja þó sem fastast fyrir framan skjáinn öll kvöld. Guðbergur Bergsson var orðheppinn og líflegur rithöfundur sem má ekki gleymast. Í bók hans, Sú kvalda ást sem hugarfylgsnin geyma, má finna ýmsa gullmola eins og til dæmis þegar Guðbergur minnist á hinn einnota gest sem hefur ekki upp á mikið að bjóða á andlega sviðinu í heimsóknum. „Flestir gera sér grein fyrir því að þeir endast varla meira en í eina og hálfa heimsókn og treysta sér ekki í fleiri, þess vegna sitja þeir öll kvöld heima yfir sjónvarpinu. Með því hefur jafnvel leiðinlegt og heimskt fólk komist að raun um takmörk sín og veit að það á aðeins skilið gláp á skjáinn,“ segir í bókinni. Hér er óhóflegt skjágláp talin refsing hinna
...