Söngvararnir Óskar Pétursson og Ívar Helgason og hljóðfæraleikarinn Eyþór Ingi Jónsson halda óskalagatónleika í Akureyrarkirkju í kvöld kl. 20. „Vinirnir þrír vinna náið saman allt árið, oftast við erfiðar aðstæður en um verslunarmannahelgi á…
![Þríeyki Ívar Helgason, Óskar Pétursson og Eyþór Ingi Jónsson.](/myndir/gagnasafn/2024/08/02/7448b626-7940-49ba-aa90-2cb11d6c530a.jpg)
Þríeyki Ívar Helgason, Óskar Pétursson og Eyþór Ingi Jónsson.
— Ljósmynd/Sindri Swan
Söngvararnir Óskar Pétursson og Ívar Helgason og hljóðfæraleikarinn Eyþór Ingi Jónsson halda óskalagatónleika í Akureyrarkirkju í kvöld kl. 20.
„Vinirnir þrír vinna náið saman allt árið, oftast við erfiðar aðstæður en um verslunarmannahelgi á hverju ári sleppa þeir sér aðeins og gera að gamni sínu um leið og þeir flytja óskalög tónleikagesta,“ segir í viðburðarkynningu. Þar kemur fram að tónleikagestir fá í hendur „mjög langan lagalista og hægt er að kalla upp þau lög sem tríóið á að flytja. Mikið líf og fjör hefur einkennt þessa tónleika í gegnum árin, en óskalagatónleikar hafa verið haldnir í Akureyrarkirkju með einum eða öðrum hætti í hátt í 20 ár.“
Þess má geta að húsið verður opnað kl. 19.15. Miðar eru seldir við innganginn.