Árbær Ragnar Bragi Sveinsson og Fred Saraiva eigast við.
Árbær Ragnar Bragi Sveinsson og Fred Saraiva eigast við. — Morgunblaðið/Hákon

Fylkir og Fram gerðu markalaust jafntefli í Bestu deild karla í knattspyrnu í Árbænum í fyrrakvöld. Fylkir komst upp fyrir Vestra á botninum en þar eru bæði lið með 12 stig. Fram fór upp fyrir Stjörnuna og í 6. sætið með 23 stig. Einkunnagjöf: 1 M: Orri Sveinn Segatta, Ragnar Bragi Sveinsson og Emil Ásmundsson (Fylki), Kennie Chopart, Tiago Fernandes og Tryggvi Snær Geirsson (Fram). Dómari var Vilhjálmur Alvar Þórarinsson, einkunn 7.