Blessaðu forseta Íslands og fjölskyldu hennar. Blessaðu landið okkar gjöfula, þjóðina okkar dýrmætu og allt hið góða sem við getum haft fram að færa.
Sigurbjörn Þorkelsson
Sigurbjörn Þorkelsson

Sigurbjörn Þorkelsson

Nú þegar við höfum valið okkur forseta Íslands með lýðræðislegum hætti leyfi ég mér að nota tækifærið og óska Höllu Tómasdóttur, eiginmanni hennar, Birni Skúlasyni, og fjölskyldu þeirra innilega til hamingju með kjörið og embættið um leið og ég óska þeim og bið farsældar og blessunar í framhaldinu. Það er mín bæn að störf Höllu Tómasdóttur verði okkur öllum til heilla og framfara.

Halla hefur sýnt það að hún hefur hlýja og hrífandi nálgun á menn og málefni með sínu geislandi viðmóti sem eftir er tekið og smitar út frá sér. Vonandi nýtist framkoma hennar og kraftar vel í þágu sameiningar og samtals, hugrekkis og hugsjóna á næstu árum.

Ég hvet okkur öll til að minnast forseta Íslands í bænum okkar. Uppörvum hana og hvetjum með sanngirni, hugprýði, velvild og með eðlilegri

...