Jón Tryggvi Þorbjörnsson fæddist 21. maí 1941. Hann lést 23. júlí 2024.

Útför var 1. ágúst 2024.

Elsku besti tengdapabbi.

Því miður er lífið oft með eitthvert spaug sem við kunnum ekki að meta. Það á við um atburði síðustu vikna með þeirri niðurstöðu að þú ert farinn frá okkur í sumarlandið.

Þú tókst mig í hlýja stóra faðminn þinn í fyrsta skiptið sem Óli fór með mig í heimsókn í Ljósheimana og upp frá því urðum við miklir vinir. Við áttum mjög svipaða lund, enginn asi bara slaki. Allar stundirnar saman í eldhúsinu í Ljósheimunum, þú á bekknum öðrum megin, við Óli hinum megin og Gulla fljúgandi í kringum okkur með vöfflur, pönnukökur eða aðrar kræsingar. Þetta voru alvöru samræður í þessu horni, ég lærði helling af bændamáli, hvernig Húnvetningar segja sögur

...