Valur og Stjarnan eru úr leik í Sambandsdeild karla í fótbolta en Valsmenn töpuðu 4:1 fyrir St. Mirrren í Skotlandi og Stjarnan steinlá gegn Paide í Eistlandi, 4:0, í seinni leikjum annarrar umferðar undankeppninnar í gærkvöld
![Skoraði Tryggvi Hrafn Haraldsson sækir að marki St. Mirren í fyrri leiknum. Hann skoraði úr vítaspyrnu í gærkvöld.](/myndir/gagnasafn/2024/08/02/8cdbd51c-07aa-4e79-b013-0598b87e62c9.jpg)
Skoraði Tryggvi Hrafn Haraldsson sækir að marki St. Mirren í fyrri leiknum. Hann skoraði úr vítaspyrnu í gærkvöld.
— Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Evrópa
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Valur og Stjarnan eru úr leik í Sambandsdeild karla í fótbolta en Valsmenn töpuðu 4:1 fyrir St. Mirrren í Skotlandi og Stjarnan steinlá gegn Paide í Eistlandi, 4:0, í seinni leikjum annarrar umferðar undankeppninnar í gærkvöld.
Valsmenn áttu á brattann að sækja gegn St. Mirren allan tímann en áttu þó sína möguleika. Strax eftir að Shaun Rooney kom Skotunum yfir á 16. mínútu, 1:0, komst Tryggvi Hrafn Haraldsson í dauðafæri, einn gegn Ellery Balcombe markverði, sem varði glæsilega frá honum.
Í seinni hálfleik skoruðu Toyosi Olusanya og Mark O’Hara fyrir St. Mirren á 51. og 65. mínútu en markið hjá Olusanya hefði aldrei átt að standa vegna augljósrar
...