Viðgerð á leikskólanum Brákarborg við Kleppsveg 150 mun kosta Reykjavíkurborg tugi milljóna króna auk kostnaðar við flutning starfseminnar í Ármúla 28-30, meðan á viðgerðum stendur. Framúrskarandi vistvænar og sjálfbærar áherslur Tæp tvö ár eru…
Verðlaunaleikskóli Dagur B. Eggertsson lyftir grænu skóflunni er hann tók við viðurkenningu, fyrir framúrskarandi vistvænar og sjálfbærar áherslur.
Verðlaunaleikskóli Dagur B. Eggertsson lyftir grænu skóflunni er hann tók við viðurkenningu, fyrir framúrskarandi vistvænar og sjálfbærar áherslur. — Ljósmynd/Reykjavíkurborg

Óskar Bergsson

oskar@mbl.is

Viðgerð á leikskólanum Brákarborg við Kleppsveg 150 mun kosta Reykjavíkurborg tugi milljóna króna auk kostnaðar við flutning starfseminnar í Ármúla 28-30, meðan á viðgerðum stendur.

Framúrskarandi vistvænar og sjálfbærar áherslur

Tæp tvö ár eru síðan nýi leikskólinn var opnaður og miklar væntingar voru bundnar við húsnæðið. Í september sama ár fékk Reykjavíkurborg viðurkenninguna Grænu skófluna fyrir byggingu leikskólans en þau eru veitt fyrir mannvirki sem byggt hefur verið með framúrskarandi vistvænum og sjálfbærum áherslum.

Veitandi Grænu skóflunnar er Grænni byggð, frjáls félagasamtök stofnuð árið 2010 til að hvetja til sjálfbærrar þróunar byggðar, með því að hvetja og efla fólk til að vinna að því sameiginlega

...