Ferðamannastraumurinn til Grímseyjar hefur aukist á undanförnum árum. Halla Ingólfsdóttir, formaður Hverfisráðs Grímseyjar, segir að sumarið hvað varðar ferðaþjónustu sé búið að vera mjög gott þrátt fyrir breytta ferðahegðun, þar sem fólk bókar núna með minni fyrirvara en áður
Ferðamenn Reynt er að takmarka fjölda svo töfrar Grímseyjar hverfi ekki.
Ferðamenn Reynt er að takmarka fjölda svo töfrar Grímseyjar hverfi ekki. — Ljósmynd/Anne-Lise Stangenes

Sæþór Már Hinriksson

saethor@mbl.is

Ferðamannastraumurinn til Grímseyjar hefur aukist á undanförnum árum. Halla Ingólfsdóttir, formaður Hverfisráðs Grímseyjar, segir að sumarið hvað varðar ferðaþjónustu sé búið að vera mjög gott þrátt fyrir breytta ferðahegðun, þar sem fólk bókar núna með minni fyrirvara en áður. „Það er búið að vera öðruvísi að því leytinu til en það er samt búið að vera gott,“ segir Halla.

Gistirými vel nýtt

Halla segir að ferðamönnum hafi fjölgað og mikill áhugi sé á náttúru, fuglalífi og litlu samfélagi Grímseyjar. Gisting hafi verið vel nýtt og ferðamönnum sem koma með ferju hafi fjölgað frá síðasta sumri. „Það hafa komið miklu fleiri með ferjunni heldur en síðasta sumar,“ segir Halla og bætir við að veitingastaðurinn og gistiheimili

...