Hljómsveitin Osmē hefur sent frá sér plötuna Við Laugarbakka, en um er að ræða tónleikaupptöku frá Norðanpaunki við Laugarbakka við Miðfjarðará í ágúst 2023. Útgáfunni verður fagnað með tónleikum á Norðanpaunki á morgun, laugardag. „Osmē er nýleg hljómsveit og kennir sig við stefnu sem þeir kalla hugleiðsluþungarokk,“ segir í kynningu. Sveitina skipa Benedikt Reynisson, Helgi Örn Pétursson og Þórður Bjarki Arnarson.